Svikahlekkir
Greinir þekkt svikamynstur og grunsamlega hlekki í skilaboðum. Aðgerðir fara eftir stillingum serversins.
Íslenskur öryggisbot fyrir Discord
Verndarinn hjálpar þér að greina svikahlekki og spam, stilla orðasíur og halda utan um aðgerðir starfsfólks í atvikaskrá.
Kostnaðarlaust · Ekkert premium · Engin Administrator-réttindi
Þínar reglur. Skýr viðbrögð.
Þínar reglur. Skýr viðbrögð.
Greinir þekkt svikamynstur og grunsamlega hlekki í skilaboðum. Aðgerðir fara eftir stillingum serversins.
Bregst við mörgum skilaboðum á stuttum tíma. Þú velur þröskuldinn og viðbrögðin.
Stilltu orð og samsvörun. Veldu skráningu, eyðingu, viðvörun eða timeout.
Orðasíur og hlekkjagreining virka líka þegar skilaboðum er breytt.
Skoðaðu aðgerðir, ástæður og hver framkvæmdi þær í stjórnborði og loggrás.
Notaðu /warn, /timeout, /kick og /ban með þeim heimildum sem starfsfólkið hefur.
Ferli
Verndarinn fylgist með þeim atburðum sem stjórnendur hafa heimilað — ný skilaboð, breytingar og skipanir.
Reglur serversins meta hvort um spam, grunsamlegan hlekk eða orðasíu sé að ræða.
Reglur botsins og orðasíur sem þú virkjar stýra viðbrögðum. Sjálfvirk bönn eru aðeins virk ef stjórnendur kveikja á þeim.
Stjórnendur fá skýrt yfirlit í loggrás og stjórnborði og geta gripið inn í.
Það sem stjórnandi sér
Atvik birtast í loggrás Discord og í stjórnborðinu með sömu reitum: tegund, ástæðu, greiningu, aðgerð og hver framkvæmdi. Skoðaðu ástæðu og aðgerð þegar atvik hefur verið skráð.
Grunsamlegur hlekkur stöðvaður
Sýnishorn af atvikaskrá
Persónuvernd í hnotskurn
Discord-auðkenni, stillingar og umsjónaratvik eru vistuð til að botinn virki.
Sjálfvirk umsjón les skilaboð í vinnsluminni. Hún safnar ekki öllum samtölum serversins.
Persónuupplýsingar eru ekki seldar. Nánari upplýsingar um vinnslu og varðveislu eru í stefnunni.
Verndarinn er líka með leiðbeiningar um hvernig svik, vélveiðar og stolnir Discord-aðgangar virka — á íslensku.
Það er auðvelt að láta falska Discord-síðu líta sannfærandi út. Hér eru nokkur atriði sem þú ættir alltaf að skoða áður en þú skráir þig inn.
Það sem þú ættir að gera fyrst ef þú heldur að einhver annar hafi komist inn á reikninginn þinn.
Administrator er ekki eina permissionið sem getur valdið veseni.
Spurt og svarað
Verndarinn er íslenskt öryggis- og umsjónartól fyrir Discord. Hann greinir spam, grunsamlega hlekki og orð sem stjórnendur stilla — og bregst við eftir reglum hvers servers.
Já. Verndarinn er kostnaðarlaus og hefur ekkert premium-þrep. Boðshlekkurinn biður ekki um Administrator-réttindi.
Eigandi og stjórnendur með viðeigandi Discord-heimildir. Þið kveikið á sjálfvirkri umsjón, veljið orðasíur, þröskulda, loggrás og undanþágur. Verndarinn framkvæmir aðeins það sem þið hafið leyft.
Ef sjálfvirk umsjón er virk les hann skilaboðatexta — það krefst Message Content Intent, ekki aðeins Lesa skilaboðasögu. Hann byggir ekki upp safn af öllum skilaboðum. Atvikaskrár orðasía geyma auðkenni og heiti reglu — ekki heilan texta.
Nei. Sjálfvirk greining er hjálpartæki. Hún getur misst af hættu og brugðist við einhverju sem síðar reynist saklaust. Mannleg umsjón skiptir áfram máli.
Það tekur stutta stund. Þú velur hvaða vörn er virk og hvernig brugðist er við.